Sumarið er komið hjá Dalton...
19.5.2011 | 13:50
Sumarið er greinilega komið hjá okkur Dalton bræðrum... Verðum í brjáluðum fíling á Hressingarskálanum fimmtudagskvöldið 19.maí.
Föstudaginn 20.maí verðum við svo á SPOT, kópavogi þar sem keppnin Goð og Gyðjur fer fram. Við sjáum til þess að allir verði sveittir og sexí með dúndrandi ball stemningu.
Svo tökum við frí á Laugardag til þess að styðja Böddann okkar á Hlustendaverðlaunum FM957, en hann er einmitt tilnefndur sem söngvari ársins... Aftur.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
EUROVISION BALL - DALTON, DJ ÓLI GEIR og DJ JOEY D á CENTER Keflavík
11.5.2011 | 17:43
Laugardagskvöldið 14. maí verður haldið eitt sveittasta partý ársins á Center í Keflavík. Flestir eru búnir með prófin þarna og Eurovision partýin öll streyma niður í bæ.
Fram koma:
DALTON BRÆÐUR
DJ ÓLI GEIR
DJ JOEY D
Við ætlum að troða þessu öllu inná Center þetta laugardagskvöldið og búa til eitt sveittasta ball sem haldið hefur verið í Keflavík.
Það er óhætt að segja að það verði eitthvað fyrir alla á Center þetta kvöldið því við ætlum að vera með partý á tveim hæðum. Uppi verður ball stemmari og niðri verður danstónlist í bland við allt það vinsælasta. Við ætlum að troða þessu öllu inná Center þetta kvöldið!
Forsalan hefst miðvikudaginn 4. maí í Galleri Keflavík og verða örfáir miðar í forsölu.
MIÐAVERÐ Í FORSÖLU ER AÐEINS 1.000 kr. (Dýrara við hurð)
Fyrstir koma, fyrstir fá.
Fylgist með á Facebook og þið getið unnið boðsmiða o.fl. skemmtilegt!
Prófloka, Eurovision, Dalton, Dj Óli Geir, Dj Joey D, þú og allir hinir. Getur ekki klikkað !
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Helgin 6-7 maí
5.5.2011 | 15:24
FÖSTUDAGUR 6.MAÍ - SPOT, kópavogi
Böddi verður vant við látinn en Ingi Valur stór-tenór tekur við hljóðnemanum í þetta skiptið. Þetta verður því forvitnilegur kokteill þetta kvöldið!
LAUGARDAGUR 7.MAÍ - HRESSÓ
Svo er það Hressó á laugardag...
Sjáumst í MEGA FÍLÍNG!
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Böddi tilnefndur "Söngvari ársins" á Hlustendaverðlaunum FM957
4.5.2011 | 18:04
Böðvar Reynisson söngvarinn okkar undurfagri er tilnefndur "Söngvari ársins" á Hlustendaverðlaunum FM957. Endilega kjósið kappann hér: http://www.plusinn.is/kannanir/TakeSurvey.aspx?PageNumber=1&SurveyID=n2LH788
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Dalton á 9.mest spilaða lagið á Íslandi !
4.5.2011 | 17:55
Jú, mikið rétt...
Samkvæmt www.plotutidindi.is er "Viltu þiggja minn koss" níunda vinsælasta lagið á Íslandi í dag. Þetta er semsagt samantekt frá öllum helstu útvarpsstöðvum.
Þökkum góðar viðtökur!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)